
• Tækið hitnar að innan þegar það er í gangi. Ekki snerta
hitaelementin sem eru í heimilistækinu. Notaðu alltaf
ofnhanska til að fjarlægja eða til að setja aukahluti eða
eldföst mót í ofninn.
• Áður en hafist er handa við viðhald, skal aftengja tækið við
rafmagn.
• Tryggja skal að slökkt sé á tækinu áður en skipt er um
ofnljós til að forðast möguleika á raflosti.
• Ekki nota gufuhreinsibúnað til að hreinsa heimilistækið.
• Ekki nota sterk tærandi hreinsiefni eða skarpar málmskröpur
til að hreinsa glerhurðina þar sem slíkt getur eyðilagt
yfirborðsfleti, sem getur aftur leitt til þess að glerið brotnar.
• Ef rafmagnssnúran er skemmd, verður að fá nýja frá
framleiðanda, þjónustuaðila hans eða svipuðum hæfum aðila
til þess að koma í veg fyrir hættu.
ÖRYGGISLEIÐBEININGAR
Uppsetning
AÐVÖRUN! Einungis til þess
hæfur aðili má setja upp þetta
heimilistæki.
• Fjarlægja skal allar umbúðir.
• Ekki setja upp eða nota skemmt
heimilistæki.
• Fylgja skal uppsetningarleiðbeiningum
sem fylgja með tækinu.
• Farðu alltaf varlega þegar þú hreyfir
tækið af því að það er þungt. Alltaf skal
nota öryggishanska.
• Ekki toga í handfangið á heimilistækinu
eða draga það á handfanginu.
• Halda skal lágmarksfjarlægð frá hinum
heimilistækjunum og einingunum.
• Gættu þess að tækinu sé komið fyrir
undir og við hliðina á traustum og
stöðugum hlutum.
• Hliðar ofnsins verða að standa beinar og
við hlið tækja eða eininga sem hafa
sömu hæð.
Tenging við rafmagn
AÐVÖRUN! Eldhætta og hætta
á raflosti.
• Allar tengingar við rafmagn skulu
framkvæmdar af rafverktaka með tilskilin
starfsréttindi.
• Heimilistækið þarf að vera jarðtengt.
• Gætið þess að rafmagnsupplýsingarnar
á tegundarspjaldinu passi við aflgjafann.
Ef ekki, skal hafa samband við rafvirkja.
• Alltaf nota rétt uppsetta innstungu sem
gefur ekki raflost.
• Ekki nota fjöltengi eða
framlengingarsnúrur.
• Gætið þess að rafmagnsklóin og snúran
verði ekki fyrir skemmdum. Ef skipta þarf
um rafmagnssnúru verður viðurkennt
þjónustuver okkar að sjá um það.
• Ekki láta rafmagnssnúruna komast í
snertingu við dyr tækisins, einkum þegar
dyrnar eru heitar.
• Vörn hluta gegn raflosti, verður að vera
fest þannig að ekki sé hægt að fjarlægja
slíkar varnir án verkfæra.
• Aðeins skal tengja rafmagnsklóna við
rafmagnsinnstunguna í lok
Leonard 3
Comentarios a estos manuales